Djammferđ eftir 8 mánuđi ? .. ég held ţađ
Ætla byrja að nefna smá um prófin frá því desember en kallinn rúllaði þeim upp að sjálfsögðu og núna eins og stendur á ég eina önn eftir.. og þá fæ ég það skemmtilega viðurnefni "stúdent". Eftir þessi próf var að sjálfsögðu djamm að hætti Hornfirðinga og maður getur ekki annað sagt en að Pakkhúskvöldið hafi heppnast vel og fékk maður loksins að hitta félaga sína úr bænum en þeir voru komnir hingað um miðnætt það kvöldi. Eftir þetta skemmtilega kvöld var síðan unnið restina af desember mánuðinum í Húsasmiðjunni sem var nokkuð gott. Ég notaði tækifærið og skellti mér í ræktina af og til með Badda en annars svaf ég einnig mikið yfir jólafríið eins og hver annar venjulegur maður.
Eins og alltaf hér á Hornafirði þá er alltaf mjög skemmtilegt á 2. í jólum ball og skemmti ég mér mjög vel á því. Byrjuðum nokkrir strákarnir heima hjá Palla Hænu, en eins og einhverjir vita þá var ekkert árgangspartý í ár heldur splittaðist hópurinn á 2. í jólum sem var bara allt í lagi.. hefðum ekki getað komist fleiri inn til Palla. Eftir það lá leiðin út í Sindrabæ þar sem ballið var byrjað og flestir stóðu úti af einhverjum ástæðum .. en eftir nokkra klukkutíma fór fólk að týnast inn hægt og rólega.
Það var frekar rólegt eftir 2. í jólum ballið fram að áramótum en þá var maður orðinn mjög ölvaður. Byrjaði eitthvað að sötra heima með pápa gamla og síðan var ég eitthvað að vesenast úti með fólkinu. Um tvöleytið kíkti ég með Einsa, Bjössa, Ogga, Gisla F og fleiri á ball á Víkinni. Gott er að nefna að Einar Smári eyddi aleigu sinni á barnum sem er bara gott mál fyrir mig því ég drakk helmingin af því sem hann keypti.. en jamm.. maður varð að vera góður og splæsa á ölvaða helvítið af og til. Ballið var í alla staði frábært og eftir ball kíkti maður út með Hödda, Gunnari, Fransa og Badda og stofnuðum við einmitt þetta kvöld hryðjuverkahópinn "Mr. Chaos" .. en sá hópur starfaði meðal annars við það að velta ruslatunnum og flagga brettum.
Eftir áramótadjammið var að styttast í ljóta skólann en þá fór maður aftur að vesenast og redda sér helvítis bókum.. en ég gat allavega hugsað til þess að þetta yrði seinasta skiptið mitt sem ég kaupi bækur í framhaldsskóla.. ahh.. góð tilfinning.. ekki satt ? Áramótaheitin mín voru líklegast að byrja að æfa fótbolta á fullu aftur.. þar sem ég hafði ekki snert fótbolta í rúma 3 mánuði :/
myndaveisla frá mótinu :
Stoltir sigurvegarar, en þetta er einmitt tekið sekúndum eftir frægan sigur gegn Milf-Hunters, á myndinni má sá "pólsku keðjusögina" (Olgeir) eftir erfiðan tapleik fyrir hans lið.
Hér er mynd frá leiknum "East Side Homies vs Milf-Hunters".. þetta er tekið sekúndum fyrir eina mark leiksins sem var skorað af Jóhanni Bergi, liðsmanni East Side Homies ..

Hér er ég að taka eitt "Chakka" öskur eins og margir kalla það ..
Hér er ég að taka við bikarnum fræga eftir frábært mót hjá East Side Homies, einnig
má sjá hinn þrautreynda þjálfara East Side Homies, Emil Morávek á myndinni.
Stoltir sigurvegarar, mikið er um mongólitasvipi á þessari mynd ..
Jæja nóg um þetta allt, um seinustu helgi var tekið gott djamm á laugardeginum þar sem maður hafði ekki fengið sér í glas síðan um áramótin og því var tilvalið að hrynja í það. Einmitt á þessu laugardagskvöldi var haldið hið vinsæla framhaldsskólamót í knattspyrnu og var ég að þessu sinni í liði East Side Homies sem eins og flestir vita eru erkifjendur þáverandi meistara mótsins Milf-Hunters. East Side Homies unnu að sjálfsögðu þetta mót og er hægt að lesa meira um mótið á http://www.fas.is/. Eftir mótið lá leiðin heim til Ragga og Sindra þar sem menn voru að sötra bjór úr bikarnum fræga en stuttu seinna færðum við okkur yfir til Gunnars Hersis, mikið rugl þar í gangi.. farið í marga rugl leiki og hringt í marga samkynheigða 10. bekkinga og Dóru á Sejlavöllum.
myndaveisla frá laugardagskvöldinu :
J-Cruize búinn að sötra of mikið af hvítvini.. nettur tappi ..
Ég og Sindri nýkomnir í teitið ..
Mögnuð mynd af partýhaldaranum Gunnari.
Baddi, Haukur og fleiri á myndinni.. þarna vantar Mix-ið hans Hauxa á myndinni ..
Gunnar Örn og Höddi .. eitthvað að steikjast .. þetta er örugglega á tímanum þegar þeir voru að plana
að hringja í Dóru á Seljavöllum ..
Á sunnudeginum vaknaði maður grjótþunnur og ógeðslegur og af einhverjum ástæðum var fótboltaæfing einmitt á þessum degi. Eftir æfinguna skellti maður sér í pizzaveislu út á hóteli með strákunum, en eins og margir vita var pizzaveisla í verðlaun á FAS-mótinu. Ég borðaði um 20 sneiðar og gat varla labbað eftir það.. en þetta var án efa þess virði.. helvíti góðar pizzur.
Skólinn gengur og gengur.. en mikið er eftir.. maður stefnir á því núna að vera bara duglegur að læra, lyfta, æfa og blogga.. hehe. Ætla svo að skella hér einni mynd af líklegum áfangastað hjá okkur strákunum sem eru að fara líklegast til Króatíu í sumar.. en ennþá er óvisst hvort um hótel eða sumarhús sé að ræða.. sjáum til.. höfum 8 mánuði..

Ahh.. "gullströndin" eins og hún er kölluð.. ég þarna eftir 8 mánuði!!!!



















































